Stjórnarhættir

Stjórnarháttayfirlýsing

Festi fylgir leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar voru út af Viðskiptaráði Íslands, NASDAQ Iceland og Samtökum atvinnulífsins í endurskoðaðri útgáfu 1. júlí 2021. Leiðbeiningarnar eru aðgengilegar á vef www.leidbeiningar.is.

Stjórnarhættir Festi eru markaðir af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, samþykktum félagsins og starfsreglum stjórnar. Starfsreglur stjórnar voru síðast yfirfarnar og samþykktar á stjórnarfundi þann 24. janúar 2024. Reglurnar eru settar samkvæmt ákvæðum í 5. mgr. 70. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög og 4. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins. Í samþykktum er kveðið á um tilgang félagsins, hlutafé þess, hluthafafundi, stjórn, forstjóra, reikningshald og endurskoðun. Núverandi starfskjarastefna Festi var samþykkt á aðalfundi félagsins þann 22. mars 2023. Stefnan nær til starfskjara stjórnarmanna, forstjóra og æðstu stjórnenda félagsins.

Starfsreglur stjórnar, samþykktir félagsins og upplýsingar um starfskjarastefnu eru aðgengilegar á vefsíðu Festi, www.festi.is/cc/stjornarhættir. Æðsta vald í málefnum félagsins er í höndum hluthafa þess. Aðalfund skal halda fyrir lok ágúst ár hvert. Stjórn fer með æðsta vald í málefnum félagsins á milli hluthafafunda og ber meginábyrgð á rekstri þess. Stjórn félagsins gerir árlega árangursmat á störfum sínum. Samskipti stjórnar og hluthafa fara fram á hluthafafundum. Stjórnarmenn í félaginu eru sjálfstæðir í störfum sínum og taka ekki við fyrirmælum frá hluthöfum félagsins eða öðrum hagsmunaaðilum. Stjórnarmenn gæta jafnframt trúnaðar í störfum sínum og veita hluthöfum ekki upplýsingar um rekstur eða starfsemi félagsins nema slíkt sé kynnt á vettvangi stjórnar.

Samkvæmt samþykktum Festi skal stjórn félagsins vera skipuð fimm stjórnarmönnum sem kjörnir eru árlega á aðalfundi. Stjórn félagsins skipa samkvæmt niðurstöðu aðalfundar 22. mars 2023: Guðjón Reynisson, Hjörleifur Pálsson, Magnús Júlíusson, Margrét Guðmundsdóttir og Sigurlína V Ingvarsdóttir. Í stjórn eru nú þrír karlar og tvær konur. Félagið uppfyllir því ákvæði laga um hlutafélög um kynjahlutföll stjórnar sem tóku gildi 1. september 2013. Stjórnarmenn eru með fjölbreytta menntun og hafa víðtæka reynslu úr atvinnulífinu.

Aðalfundur félagsins verður haldinn 6. mars 2024. Þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn félagsins þurfa að tilkynna það skriflega til stjórnar að minnsta kosti tíu sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Samþykktum félagsins má einungis breyta með samþykki minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða á löglegum hluthafafundi, enda sé þess rækilega getið í fundarboði að slík breyting sé fyrirhuguð og í hverju hún felst.

Stjórnin hefur sett sér starfsreglur sem yfirfarnar eru árlega. Í þeim er að finna skilgreiningu á valdsviði stjórnar og verksviði stjórnar gagnvart forstjóra. Í reglunum er meðal annars að finna ákvæði um skipan stjórnar, samskipti við hluthafa, boðun funda og ályktunarhæfni, fundargerðir og innihald þeirra, reglur um þagnar- og trúnaðarskyldu stjórnarmanna og reglur um hæfi stjórnarmanna til þátttöku í afgreiðslu mála. Stjórn kýs sér formann og varaformann ásamt því að skipa nefndarmenn undirnefnda. Stjórnarfundi skal halda svo oft sem þörf krefur og að jafnaði eigi sjaldnar en átta sinnum á ári. Fundarstaður stjórnar er í höfuðstöðvum Festi að Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi. Formaður stjórnar fundum hennar. Forstjóri á sæti á fundum stjórnar og hefur þar umræðu- og tillögurétt, nema stjórn ákveði annað í einstökum tilfellum. Stjórn félagsins ákveður meðal annars starfskjör forstjóra og hittir endurskoðendur reglulega. Stjórn hefur skipað endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Tilnefninganefnd starfar í umboði aðalfundar.

Stjórn

Stjórnarformaður

Guðjón Reynisson

Guðjón Reynisson lauk MBA námi frá Háskóla Íslands árið 2002, rekstrar- og viðskiptanámi frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands 1999 og útskrifaðist með íþróttakennararéttindi á grunn- og framhaldsskólastigi frá Íþróttakennaraskóla Íslands 1986.

Guðjón er í dag sjálfstætt starfandi fjárfestir og stjórnarmaður.  Á árunum 2008-2017 starfaði hann sem forstjóri Hamleys of London. Fólst starfið í að móta og innleiða stefnu félagsins sem miðaði að því að stækka það úr einni verslun í aðþjóðlega keðju verslana. Guðjón leiddi sölu á félaginu árið 2011-2012 og aftur 2015-2016. Á árunum 2003-2007 gegndi Guðjón stöðu framkvæmdastjóra 10-11 verslananna. Þar áður, frá 1998-2003, var hann framkvæmdastjóri sölusviðs Tals. Hann hefur setið í stjórn Kviku banka og Securitas frá árinu 2018 og Dropp frá 2019.

Guðjón tók sæti í stjórn Festi árið 2014.

Guðjón er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins samkvæmt „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.

Varaformaður

Sigurlína Ingvarsdóttir

Sigurlína Ingvarsdóttir er með B.Sc. í Iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Sigurlína starfar í dag sem sjálfstæður ráðgjafi hjá félagi sínu, Ingvarsdóttir ehf., og stjórnarmaður. Ásamt því er hún fjárfestir hjá Behold VC, þar sem hún er einn eigenda, en sjóðurinn fjárfestir í tölvuleikjafyrirtækjum á fyrstu stigum á Norðurlöndunum. Á árunum 2006 til 2020 starfaði Sigurlína sem stjórnandi við tölvuleikjaframleiðslu á Íslandi, í Svíþjóð, Kanada og Bandaríkjunum, og stýrði meðal annars framleiðslu Star Wars Battlefront, sem var einn mest seldi tölvuleikur ársins 2015 og seldist í rúmlega 20 milljónum eintaka. Að auki stýrði Sigurlína strategíu fyrir EA Sports FIFA, eins stærsta tölvuleikjavörumerkis í heimi árin 2017 og 2018. Áður en Sigurlína sneri sér að tölvuleikjaframleiðslu starfaði hún sem verkefnastjóri í lyfjaþróun hjá Actavis og í viðskiptaþróun og við innleiðingu nýrra tæknilausna hjá Högum.

Sigurlína er stjórnarformaður Carbon Recycling International og Solid Clouds og situr að auki í stjórn Eyris Vaxtar auk nokkurra íslenskra og erlendra tölvuleikjafélaga.

Sigurlína tók sæti í stjórn Festi í júlí 2022.

Sigurlína er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins samkvæmt „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.

Stjórnarmaður

Hjörleifur Pálsson

Hjörleifur útskrifaðist sem viðskiptafræðingur með Cand. Oecon. gráðu frá Háskóla Íslands árið 1988. Hann hlaut löggildingu til endurskoðunarstarfa 1989 og starfaði sem endurskoðandi til 2001. Hann var framkvæmdastjóri fjármálasviðs Össurar hf. frá 2001 til 2013. Frá 2013 hefur Hjörleifur setið í stjórnum margs konar fyrirtækja og er í dag stjórnarmaður, formaður endurskoðunarnefndar og í starfskjaranefnd alþjóðlega lyfjafyrirtækisins Lotus Pharmaceuticals & Co., Ltd. sem skráð er á hlutabréfamarkaði í Taívan, í stjórn Ankra ehf. (Feel Iceland), í stjórn Brunns vaxtarsjóðs slhf. og í stjórn Brandr Global ehf. Hjörleifur er formaður tilnefningarnefndar Icelandair Group hf., formaður endurskoðunarnefndar Hörpu tónlistarhúss ohf. og situr í endurskoðunarnefnd Landsbankans hf. Hjörleifur var um árabil formaður stjórnar og háskólaráðs Háskólans í Reykjavík ehf. og er meðal annars fyrrverandi stjórnarformaður Sýnar hf.

Hjörleifur tók sæti í stjórn Festi í júlí 2022.

Hjörleifur er óháður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins samkvæmt „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.

Stjórnarmaður

Magnús Júlíusson

Magnús er með M.Sc. gráðu í sjálfbærum orkuvísindum frá Konunglega tækniháskólanum í Stokkhólmi og B.Sc. gráðu í hátækniverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Magnús er framkvæmdastjóri og meðstofnandi Stiku umhverfislausna ehf. en fyrirtækið er hugbúnaðarfyrirtæki á sviði umhverfislausna. Áður starfaði Magnús sem aðstoðarmaður háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra. Árið 2017 stofnaði hann Íslenska orkumiðlun ehf. sem Festi keypti í mars 2020, en fyrirtækið sérhæfði sig í raforkusölu á almennum raforkumarkaði. Magnús tók þá við sem forstöðumaður orkusviðs N1 og starfaði þar til loka árs 2021. Á árunum 2014-2015 starfaði hann sem sérfræðingur í raforkueftirliti hjá Orkustofnun og 2015-2016 sem orkumiðlari hjá Orku náttúrunnar. Frá 2013 hefur Magnús sinnt stundakennslu við viðskiptafræðideild Háskólans í Reykjavík.

Magnús situr í stjórn Rio Tinto á Íslandi. Magnús sat í nefnd um mótun langtímaorkustefnu fyrir Ísland en stefnan felur í sér framtíðarsýn og leiðarljós fyrir Ísland í orkumálum til ársins 2050.

Magnús tók sæti í stjórn Festi í júlí 2022.

Magnús er háður félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins samkvæmt „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.

Stjórnarmaður

Margrét Guðmundsdóttir

Margrét Guðmundsdóttir er með Cand. oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, Cand. merc. próf frá Copenhagen Business School og Executive menntun frá CEDEP/Insead í Frakklandi. Margrét starfaði sem forstjóri Icepharma hf. árin 2005-2016. Áður starfaði Margrét sem framkvæmdastjóri hjá Skeljungi 1995-2005, framkvæmdastjóri hjá Kuwait Petroleum (Danmark) A/S 1986-1995 og skrifstofustjóri hjá Dansk ESSO, síðar Statoil frá 1982 til 1986. Hún var aðstoðarframkvæmdastjóri AIESEC International í Brussel 1978-1979.

Margrét situr í stjórn Eignarhaldsfélagsins Lyngs ehf., Eimskips ehf., Heklu hf., Heklu Fasteigna ehf. og Paradísar ehf. Margrét var formaður European Surgical Trade Association 2011-2013 og sat í stjórn félagsins frá 2009-2015.  Hún var formaður Félags atvinnurekenda 2009-2013, sat í stjórn Reiknistofu bankanna 2010-2011 og 2016-2018, stjórn ISAVIA 2017-2018 og stjórn SPRON 2008-2009. Margrét hefur einnig setið í stjórnum eftirtaldra fyrirtækja: Skýrr hf., Frigg hf., Q8 A/S í Danmörku og Dansk Institut for Personalerådgivning.

Margrét hóf stjórnarstörf hjá N1 árið 2011 og var formaður N1 frá 2012 og síðar Festi til mars 2020.

Margrét er óháð félaginu, daglegum stjórnendum og stórum hluthöfum félagsins samkvæmt „Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja“ sem Viðskiptaráð Íslands, NASDAQ OMX Iceland og Samtök atvinnulífsins gáfu út 1. júlí 2021.

Framkvæmdastjórn

Forstjóri

Ásta S. Fjeldsted

Ásta Sigríður er fædd árið 1982. Á árunum 2007 til 2012 starfaði hún hjá IBM í Danmörku og stoðtækjaframleiðandanum Össuri hf., bæði í Frakklandi og á Íslandi. Frá árinu 2012 til ársins 2017 starfaði hún fyrir ráðgjafarfyrirtækið McKinsey & Company, bæði á skrifstofum þess í Tókýó og Kaupmannahöfn, þar sem hún leiddi fjölda smærri og stærri greininga-, umbóta- og umbreytingaverkefna. Frá árinu 2017 starfaði hún sem framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands. Ásta Sigríður gegndi stöðu framkvæmdastjóra Krónunnar frá 2020 og tók við sem forstjóri Festi 7. september 2022. Hún situr í fyrirtækjaráði UNICEF á Íslandi og er stjórnarmaður hjá Transition Labs. Ásta Sigríður er vélaverkfræðingur með M.Sc. gráðu frá DTU, Tækniháskólanum í Danmörku.

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs

Magnús Kr. Ingason

Magnús er fæddur árið 1970.  Hann starfaði sem ráðgjafi og endurskoðandi hjá KPMG á árunum 1994 til 1998. Í upphafi árs 1999 tók hann við stöðu forstöðumanns bókhalds hjá Flugleiðum og starfaði sem slíkur þar til í upphafi árs 2003 að hann tók við stöðu framkvæmdastjóra Fjárvakurs – Icelandair Shared Services, nýstofnaðs dótturfélags Flugleiða, sem byggði á grunni fjármáladeilda félagsins. Félagið þjónustaði öll félögin innan Icelandair Group og mörg meðalstór og stór félög á Íslandi á sviði reikningsskila, innheimtu- og greiðsluþjónustu, launavinnslu, stjórnendaupplýsinga, skattaráðgjafar o.fl. Magnús gegndi starfinu þar til um mitt ár 2019. Þá tóku við ráðgjafarstörf fyrir Icelandair Group við uppbyggingu fjármálasviðs flugfélags á Grænhöfðaeyjum til ársloka 2019. Magnús hóf störf sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Festi í ársbyrjun 2020. Hann hefur setið í stjórn ýmissa félaga og situr nú í stjórnum dótturfélaga Festi. Hann er með Cand.oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og er löggiltur endurskoðandi.

Framkvæmdastjóri ELKO

Óttar Örn Sigurbergsson

Óttar Örn Sigurbergsson er fæddur árið 1979 og hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra ELKO frá ársbyrjun 2022. Óttar hóf störf á Innkaupasviði ELKO árið 2004 og hefur hann stýrt fjölmörgum verkefnum sem hafa mótað fyrirtækið allt til dagsins í dag. Árið 2007 tók Óttar að sér innleiðingu á fyrstu vefverslun félagsins, www.elko.is, árið 2009 tók hann svo við stöðu innkaupastjóra. Samhliða stöðu innkaupastjóra sinnti hann skrifstofuhaldi, markaðsmálum, innkaupum, rekstri, sölustýringu ásamt fjölmörgum öðrum verkefnum. Árið 2020 tók Óttar við stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra þar til hann tók við sem framkvæmdastjóri í ársbyrjun 2022. Á tíma sínum í ELKO hefur hann kynnst öllum sviðum rekstrarins, sinnt fjölmörgum verkefnum þvert á fyrirtækið og tekið þátt í að móta stefnu fyrirtækisins til framtíðar. Óttar er viðskiptafræðingur með B.Sc. gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Framkvæmdastjóri Krónunnar

Guðrún Aðalsteinsdóttir

Guðrún Aðalsteinsdóttir er fædd árið 1985. Á árunum 2012 til 2015 starfaði hún hjá Novo Nordisk Engineering (NNE) í Danmörku við áætlanagerð og verkefnastýringu. Frá árinu 2015 til 2017 starfaði Guðrún hjá Te Whatu Ora Health í Nýja Sjálandi, ráðgjafarfyrirtæki í heilbrigðisþjónustu, fyrst sem yfirmaður verkefnastofu og seinna sem yfirmaður ráðgjafar á sviði rekstrarumbóta og stefnumótunar. Frá árinu 2017 starfaði hún sem forstöðumaður hjá Icelandair á rekstrarsviði þar sem hún var meðal annars ábyrg fyrir sölu og þjónustu í flugvélum félagsins, vöruþróun, innkaupum, birgðastýringu og framleiðslu. Árið 2020 hóf Guðrún störf hjá Krónunni, fyrst sem forstöðumaður innkaupa- og vörustýringar og síðar forstöðumaður stafrænnar þróunar og umbótaverkefna. Hún tók við stöðu framkvæmdastjóra Krónunnar í september 2022. Guðrún er rekstrarverkfræðingur með M.Sc. gráðu frá DTU, Tækniháskólanum í Danmörku.

Framkvæmdastjóri N1

Ýmir Örn Finnbogason

Ýmir Örn Finnbogason er fæddur 1980. Á árunum 2004 til 2006 var hann framkvæmdastjóri Rammagerðarinnar. Árin 2007 til 2009 starfaði hann sem fjármálastjóri TaxFree Europe með aðsetur í London. Eftir vetursetu á Flateyri sem rekstrarráðgjafi hjá fiskvinnslufyrirtækinu Eyrarodda hóf hann störf hjá Deloitte árið 2010 í fyrirtækjaráðgjöf með áherslu á sjávarútveg. Árið 2012 hóf hann störf sem fjármálastjóri Plain Vanilla Games sem þróaði leikinn QuizUp með yfir 100 milljónir notenda og seinna með Teatime Games sem gaf út leikinn Trivial Royale sem náði á toppinn í Apple App Store í Bandaríkjunum. Árið 2021 sneri hann aftur til Deloitte sem yfirmaður gagnagreiningar. Hann tók við stöðu framkvæmdastjóra N1 í júní 2023. Ýmir Örn er með M.Sc. gráðu í reikningshaldi og fjármálum frá Cass Business School í London og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Framkvæmdastjóri Bakkans Vöruhótels

Eva Guðrún Torfadóttir

Eva Guðrún er fædd árið 1987. Árin 2016 til 2023 starfaði hún hjá danska ráðgjafarfyrirtækinu Implement Consulting Group með sérstaka áherslu á aðfangakeðjur og vöruhús. Hjá Implement vann hún að verkefnum fyrir alþjóðleg stórfyrirtæki sem sneru að endurskipulagningu á aðfangakeðjum, m.a. staðsetningu vöruhúsa, stærð þeirra og fjölda. Einnig hefur hún komið að hönnun og uppsetningu á sjálfvirkum vöruhúsum, ásamt fjölda verkefna er snúa að ýmiskonar endurbótum á aðfangakeðjum. Hún var ráðin framkvæmdastjóri Bakkans í október 2023.  Eva Guðrún er rekstrarverkfræðingur með M.Sc. gráðu frá DTU, Tækniháskólanum í Danmörku.

Framkvæmdastjóri Yrkis

Óðinn Árnason

Óðinn er fæddur árið 1979. Á árunum 2007 til 2009 starfaði hann sem gjaldeyris- og afleiðumiðlari hjá Icebank. Árin 2009 til 2010 og 2012 til 2023 starfaði hann sem sjóðstjóri, fyrst hjá Íslenskum verðbréfum, síðan hjá Stapa lífeyrissjóði og loks hjá Stefni. Sem sjóðstjóri hefur hann stýrt innlendum skuldabréfasjóðum sem og innlendum og erlendum hlutabréfasjóðum. Hjá Stapa lífeyrissjóði var hann hluti af fjárfestingaráði sjóðsins með aðaláherslu á innlend hlutabréfasöfn ásamt öllum fasteignatengdum fjárfestingum. Árin 2011 til 2012 starfaði hann hjá Kaupthing Sverige AB í Svíþjóð þar sem hann vann við fasteignagreiningar. Hann tók við stöðu framkvæmdastjóra Festi fasteigna í júlí 2023. Óðinn er með M.Sc. gráðu í fasteignagreiningum og umsýslu fasteigna frá KTH, Konunglega tækniháskólanum í Svíþjóð, og B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

Undirnefndir

Starfskjaranefnd

Stjórn Festi hefur skipað starfskjaranefnd. Hlutverk nefndarinnar er að vera leiðbeinandi fyrir stjórn um starfskjör stjórnarmanna og stjórnenda félagsins og ráðgefandi um starfskjarastefnu, sem tekin skal til endurskoðunar ár hvert og lögð fyrir aðalfund félagsins. Skal nefndin jafnframt fylgjast með að starfskjör æðstu stjórnenda séu innan ramma starfskjarastefnu félagsins og gefa stjórn skýrslu þar um árlega í tengslum við aðalfund. Stjórn félagsins skal skipa þrjá aðila til setu í starfskjaranefnd og skulu þeir allir vera óháðir félaginu. Í starfskjaranefnd má hvorki forstjóri félagsins né annar starfsmaður eiga sæti. Haft skal að leiðarljósi að nefndarmenn hafi reynslu og þekkingu á viðmiðum og venjum við ákvörðun starfskjara stjórnenda. Starfskjör nefndarmanna skulu ákveðin á aðalfundi. Stjórn hefur sett starfskjaranefnd starfsreglur í samræmi við efni starfskjarastefnu félagsins. Í starfskjaranefnd sitja Hjörleifur Pálsson sem er formaður nefndarinnar, Guðjón Karl Reynisson og Margrét Guðmundsdóttir.

Endurskoðunarnefnd

Stjórn Festi hefur skipað endurskoðunarnefnd fyrir félagið í samræmi við ákvæði laga um ársreikninga. Í henni skulu sitja eigi færri en þrír nefndarmenn og skal meirihluti þeirra vera óháður Festi og daglegum stjórnendum félagsins. Nefndin skal skipuð til eins árs í senn á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund. Nefndarmenn skulu hafa þekkingu og reynslu í samræmi við störf nefndarinnar og skal að minnsta kosti einn nefndarmanna hafa staðgóða þekkingu og reynslu á sviði reikningsskila eða endurskoðunar. Starfskjör nefndarmanna skulu ákveðin á aðalfundi. Nefndinni er ætlað að hafa eftirlit með endurskoðun ársreikninga og mat á störfum endurskoðenda til að tryggja frekara öryggi og vönduð vinnubrögð við endurskoðunina. Formaður boðar til funda að eigin frumkvæði eða að ósk annarra nefndarmanna en þó eigi sjaldnar en fjórum sinnum á ári. Í nefndinni sitja þau Magnús Júlíusson stjórnarmaður, Sigurlína Ingvarsdóttir stjórnarmaður og Björgólfur Jóhannsson sem er formaður nefndarinnar.

Hlutverk endurskoðunarnefndar er eftirfarandi:

  • Að hafa eftirlit með gerð reikningsskila.
  • Að hafa eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits Festi, áhættustýringu og öðrum eftirlitsaðgerðum.
  • Að hafa eftirlit með endurskoðun ársreiknings Festi og annarra fjárhagsupplýsinga félagsins.
  • Að setja fram tillögu til stjórnar um val á endurskoðendum eða endurskoðunarfyrirtæki.
  • Að meta óhæði endurskoðenda eða endurskoðunarfyrirtækis og hafa eftirlit með öðrum störfum þeirra.

Tilnefninganefnd

Tilnefningarnefnd Festi starfar á grundvelli samþykkta félagsins og starfsreglna samkvæmt samþykkt aðalfundar. Er nefndin skipuð þremur einstaklingum til eins árs í senn. Eru tveir nefndarmanna kosnir á aðalfundi félagsins en sá þriðji skipaður af nýkjörinni stjórn í kjölfar aðalfundar. Meginreglan skal vera sú að nefndarmaður skipaður af stjórn skuli ekki jafnframt vera stjórnarmaður í félaginu. Tilnefningarnefnd hefur það hlutverk að undirbúa og gera tillögur um frambjóðendur við kjör stjórnar félagsins og leggur tillögur sínar fyrir hluthafafund þar sem stjórnarkjör er á dagskrá. Við mat á frambjóðendum skal horft til hæfni, reynslu og þekkingar, m.a. með tilliti til leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja og niðurstöðu árangursmats stjórnar. Þess skal gætt að tillagan samræmist ákvæðum laga um hlutafélög og samþykkta félagsins um skipan stjórnar. Tillögur nefndarinnar skulu stefna að því að stjórnin sé á hverjum tíma þannig samsett að hún búi að fjölbreyttri þekkingu og reynslu sem nýtist félaginu við stefnumótun og eftirlit í því umhverfi sem félagið starfar á hverjum tíma. Ber nefndinni í störfum sínum að hafa heildarhagsmuni allra hluthafa félagsins að leiðarljósi.

Tilnefningarnefnd skipa Sigrún Ragna Ólafsdóttir, formaður, Ólafur Arinbjörn Sigurðsson og Tryggvi Pálsson. Fyrirspurnir sendist á netfangið: tilnefningarnefnd@festi.is.

Fjárfestingarráð

Stjórn Festi skipaði fjárfestingarráð sem var starfandi fram að aðalfundi félagsins sem haldinn var þann 22. mars 2023. Í ráðinu sátu Guðjón Reynisson formaður stjórnar, Ásta S. Fjeldsted forstjóri og Magnús Kr. Ingason framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs. Fjárfestingarráð hefur ekki verið starfandi frá tilgreindum aðalfundi.

Á árinu 2023 voru haldnir 19 stjórnarfundir, 6 fundir í endurskoðunarnefnd og 6 fundir í starfskjaranefnd. Meirihluti stjórnar, endurskoðunarnefndar og starfskjaranefndar hefur mætt á alla fundi. Endurskoðunarnefnd boðar endurskoðendur félagsins á fundi reglulega auk þess sem þeir mæta á stjórnarfundi séu endurskoðuð eða könnuð reikningsskil til umfjöllunar.

Siðareglur Festi

Okkur er ljóst að orðspor Festi og dótturfélaga er ein dýrmætasta eign félagsins. Í ljósi þess höfum við sett okkur eftirfarandi siðareglur, sem gilda um alla starfsemi félagsins, alla starfsmenn og stjórn þess, sem og þá verktaka er sinna verkefnum fyrir félagið.

Samfélagið
Við förum eftir öllum lögum og reglum sem lúta að starfsemi félagsins og leggjum okkur fram um að vera traustir þátttakendur í samfélaginu.

Viðskiptavinirnir
Við berum virðingu fyrir viðskiptavinum okkar og leggjum allt kapp á að veita þeim framúrskarandi vörur og þjónustu á sanngjörnu verði. Á sama hátt virðum við birgja okkar og metum að verðleikum hlutverk þeirra í virðiskeðjunni.

Starfsfólkið
Við kappkostum að tryggja öryggi og vellíðan starfsfólks félagsins með góðum aðbúnaði á vinnustað, fræðslu og þjálfun. Við fylgjum viðurkenndum öryggis- og heilsuverndarstöðlum. Við erum umburðarlynd, tökum tillit til ólíkra sjónarmiða og leyfum hæfileikum hvers og eins að njóta sín. Við stuðlum að jafnrétti á vinnustað og erum málefnaleg og sanngjörn í öllum okkar samskiptum. Við líðum hvorki einelti né aðra áreitni.

Hluthafarnir
Við veitum hluthöfum og öðrum markaðsaðilum réttar og skilmerkilegar upplýsingar um rekstur félagsins eins og hæfir félagi á markaði. Félagið fer eftir reglum markaðarins og góðum stjórnarháttum.

Gjafir og hagsmunir
Óheimilt er að þiggja boð eða gjafir sem ætla má að hafi þann tilgang að hafa áhrif á viðskiptalegar ákvarðanir. Félagið heimilar þó að boðnar séu og þegnar hæfilegar og viðeigandi gjafir og skemmtanir í tengslum við eðlileg og lögmæt viðskipti sem ná til fleiri aðila. Gjafir og skemmtanir skulu tilkynntar til framkvæmdastjóra til samþykktar. Óheimilt er að gefa eða þiggja handbært fé. Viðskiptatengdar ákvarðanir mega undir engum kringumstæðum byggja á gjöfum og þær mega ekki leiða til hagsmunaárekstra. Gildir það um gjafir frá birgjum, þeim sem óska eftir að eiga viðskipti við fyrirtækið, eða öðrum þeim sem gætu hagnast á ákvörðunum starfsmanna fyrirtækisins. Við forðumst að taka ákvarðanir sem geta skapað hagsmunaárekstra. Við þurfum að vera vakandi og taka heiðarlega afstöðu þegar sú staða kemur upp að ákvörðun okkar fylgir persónulegur ávinningur og leita álits framkvæmdastjóra í öllum vafamálum.

Umhverfið
Við sýnum umhverfinu virðingu og leitumst við að bjóða umhverfisvænar vörur og þjónustu. Við leggjum okkur fram um að valda sem minnstum skaða á umhverfinu með starfsemi félagsins og fylgjum viðurkenndum umhverfis-, gæða-, öryggis- og heilsufarsstöðlum.

Trúnaður
Við virðum þagnarskyldu um þær trúnaðarupplýsingar, sem okkur berast, og helst sú þagnarskylda þótt látið sé af störfum. Við nýtum okkur ekki trúnaðarupplýsingar til ávinnings, hvorki fyrir okkur sjálf né aðra.

Samþykkt í Kópavogi 27. febrúar 2020
Þannig breytt í Kópavogi 28. febrúar 2022

Siðareglur Festi HELD ÞAÐ MEGI TAKA ÞENNAN HLUTA ÚT, ÆTLUM AÐ HAFA ÞETTA BARA Í TEXTAFORMI (SJÁ HÉR AÐ OFAN)

Okkur er ljóst að orðspor Festi og dótturfélaga er ein dýrmætasta eign félagsins. Í ljósi þess höfum við sett okkur eftirfarandi siðareglur, sem gilda um alla starfsemi félagsins, alla starfsmenn og stjórn þess, sem og þá verktaka er sinna verkefnum fyrir félagið.

Samfélagið

Við förum eftir öllum lögum og reglum sem lúta að starfsemi félagsins og leggjum okkur fram um að vera traustir þátttakendur í samfélaginu.

Viðskiptavinirnir

Við berum virðingu fyrir viðskiptavinum okkar og leggjum allt kapp á að veita þeim framúrskarandi vörur og þjónustu á sanngjörnu verði. Á sama hátt virðum við birgja okkar og metum að verðleikum hlutverk þeirra í virðiskeðjunni.

Starfsfólkið

Við kappkostum að tryggja öryggi og vellíðan starfsfólks félagsins með góðum aðbúnaði á vinnustað, fræðslu og þjálfun. Við fylgjum viðurkenndum öryggis- og heilsuverndarstöðlum. Við erum umburðarlynd, tökum tillit til ólíkra sjónarmiða og leyfum hæfileikum hvers og eins að njóta sín. Við stuðlum að jafnrétti á vinnustað og erum málefnaleg og sanngjörn í öllum okkar samskiptum. Við líðum hvorki einelti né aðra áreitni.

Hluthafarnir

Við veitum hluthöfum og öðrum markaðsaðilum réttar og skilmerkilegar upplýsingar um rekstur félagsins eins og hæfir félagi á markaði. Félagið fer eftir reglum markaðarins og góðum stjórnarháttum.

Gjafir og hagsmunir

Óheimilt er að þiggja boð eða gjafir sem ætla má að hafi þann tilgang að hafa áhrif á viðskiptalegar ákvarðanir. Félagið heimilar þó að boðnar séu og þegnar hæfilegar og viðeigandi gjafir og skemmtanir í tengslum við eðlileg og lögmæt viðskipti sem ná til fleiri aðila. Gjafir og skemmtanir skulu tilkynntar til framkvæmdastjóra til samþykktar. Óheimilt er að gefa eða þiggja handbært fé. Viðskiptatengdar ákvarðanir mega undir engum kringumstæðum byggja á gjöfum og þær mega ekki leiða til hagsmunaárekstra. Gildir það um gjafir frá birgjum, þeim sem óska eftir að eiga viðskipti við fyrirtækið, eða öðrum þeim sem gætu hagnast á ákvörðunum starfsmanna fyrirtækisins. Við forðumst að taka ákvarðanir sem geta skapað hagsmunaárekstra. Við þurfum að vera vakandi og taka heiðarlega afstöðu þegar sú staða kemur upp að ákvörðun okkar fylgir persónulegur ávinningur og leita álits framkvæmdastjóra í öllum vafamálum.

Umhverfið

Við sýnum umhverfinu virðingu og leitumst við að bjóða umhverfisvænar vörur og þjónustu. Við leggjum okkur fram um að valda sem minnstum skaða á umhverfinu með starfsemi félagsins og fylgjum viðurkenndum umhverfis-, gæða-, öryggis- og heilsufarsstöðlum.

Trúnaður

Við virðum þagnarskyldu um þær trúnaðarupplýsingar, sem okkur berast, og helst sú þagnarskylda þótt látið sé af störfum. Við nýtum okkur ekki trúnaðarupplýsingar til ávinnings, hvorki fyrir okkur sjálf né aðra.

Síðast samþykkt með breytingum í Kópavogi 28. febrúar 2022

Siðareglur stjórnar Festi hf.

1. Traust, fagmennska og heilindi
  • 1.1. Reglur þessar taka til stjórnar og forstjóra Festi hf.
  • 1.2. Við förum að siðareglum Festi. Við vinnum faglega, af alúð og tileinkum okkur góða viðskiptahætti og vinnubrögð sem eru til þess fallin að skapa traust.
  • 1.3. Við förum eftir lögum og reglum sem lúta að starfsemi félagsins og gætum að því að haga störfum okkar og gjörðum í samræmi við skilgreind markmið, tilgang og stefnumið Festi, stefnu félagsins um samfélagsábyrgð og starfsreglum þess.

  • 1.4. Við komum fram við haghafa og samstarfsmenn af virðingu og stuðlum að góðum samskiptum í okkar störfum.

    1.5. Orðspor Festi og dótturfélaga er ein dýrmætasta eign félagsins og grunnstoð að samfélagsstefnu félagsins. Hlutir í Festi hafa verið teknir til viðskipta aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi og telst félagið einnig tengt almannahagsmunum í skilningi laga. Það leiðir til ríkrar ábyrgðar stjórnar um vönduð vinnubrögð og að aðhafast ekkert það sem samrýmist ekki stöðu þeirra hjá félaginu út frá lagalegri ábyrgð, stefnu félagsins, ímynd og trausti til þess.
2. Hagsmunaárekstrar
  • 2.1. Við högum störfum okkar og gjörðum þannig að við drögum úr hættu á hagsmunaárekstrum.
  • 2.2. Við nýtum ekki upplýsingar sem við fáum í störfum okkar í eigin þágu eða vandamanna okkar og gætum sérstaklega að reglum um innherjaupplýsingar við framkvæmd starfa okkar.
  • 2.3. Við gætum að orðspori vinnustaðar í samskiptum utan vinnu, í samræmi við stöðu okkar í starfi.

  • 2.4. Við sýnum samstarfsvilja séu störf okkar eða aðrar gjörðir teknar til skoðunar.
3. Eftirfylgni
  • 3.1. Reglur þessar skulu kynntar fyrir öllum nýjum stjórnarmönnum. Staðfestum við sem stjórnarmenn að við höfum kynnt okkur reglurnar með undirritun okkar.

  • 3.2. Stjórn ber ábyrgð á og hefur eftirlit með því að reglum þessum sé framfylgt. Gerist stjórnarmaður brotlegur við reglur eða sýni af sér óásættanlega hegðun fer um úrvinnslu þess í samræmi við reglur Festi um orðsporsáhættu og hagsmunaárekstra.
4. Breytingar

4.1. Breytingar á siðareglum þessum skulu vera skriflegar og taka gildi þegar stjórn Festi hefur samþykkt þær. Allar breytingar á reglum þessum skulu kynntar fyrir þeim sem þær ná til um leið og þær hafa tekið gildi.

Samþykkt af stjórn 22. mars 2022
Þannig breytt á fundi stjórnar 9. júní 2022